59 umsóknir um starf kynningar- og upplýsingafulltrúa

Óhætt er að segja að mikill áhugi sé fyrir nýju starfi kynningar- og upplýsingafulltrúa hjá sjóðnum en alls bárust 59 umsóknir um starfið.  Þegar er hafin vinna við yfirferð umsókna en stefnt er að því að ganga frá ráðningu á nýjum starfsmanni í fyrstu viku febrúar.