6% ávöxtun á fyrri helmingi ársins

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs afgreiddi 6. mánaða uppgjör sjóðsins á fundi sínum 30. ágúst sl.

Ársávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins á tímabilinu var 6,0% og raunávöxtun 1,3%. Ávöxtun leiða Séreignardeildar var sem hér segir: Leið I 8,8%, Leið II 6,2% og Leið III 7,9%. Samsvarandi raunávöxtunartölur voru: 3,9%, 1,5% og 3,1%.

Alls greiddu 15.489 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu. Iðgjöld til Tryggingadeildar voru 2.918 millj. króna og iðgjöld til Séreignadeildar 26 millj. króna.

Lífeyrisgreiðslur Tryggingadeildar námu 1.796 millj. króna og lífeyris- og útgreiðslur Séreignadeildar nam 127 millj. króna, þar af 67 millj. kr. vegna heimildar til sérstakrar útborgunar skv. lögum.

Hrein eign Tryggingadeildar til greiðslu lífeyris í lok júní sl. nam 132.676 millj. króna og hrein eign Séreignar nam á sama tíma 4.036 millj. króna.