9,2% raunávöxtun á fyrri helmingi ársins

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs afgreiddi 6. mánaða uppgjör sjóðsins á fundi sínum í dag 31. ágúst 2015.

Ávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins á tímabilinu - reiknuð til árs - var 13,0% og raunávöxtun 9,2%. Ávöxtun leiða Séreignardeildar var sem hér segir: Leið I (varkára safnið) 12,1%, Leið II (áræðna safnið): 13,1% og Leið III (innlána safnið) 5,2%. Samsvarandi raunávöxtunartölur voru: 8,4%, 9,3% og 1,7%. 

Alls greiddu 16.558 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu. Iðgjöld til Tryggingadeildar voru 3.412 millj. og iðgjöld til Séreignardeildar 107 millj. króna. 

Lífeyrisgreiðslur Tryggingadeildar námu 2.157 millj. króna og lífeyris- og útgreiðslur Séreignardeildar námu 71 millj. kr., þar af 14 millj. kr. vegna heimildar til sérstakrar útborgunar skv. lögum. 

Hrein eign Tryggingadeildar til greiðslur lífeyris í lok júní nam 164.410 millj. króna og hrein eign Séreignardeildar nam á sama tíma 4.655 millj. króna.