9,4% ávöxtun á fyrri helmingi ársins

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs afgreiddi 6. mánaða uppgjör sjóðsins á fundi sínum 5. september sl. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs afgreiddi 6. mánaða uppgjör sjóðsins á fundi sínum 5. september sl.

Ársávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins á tímabilinu var 9,4% og raunávöxtun 2,1%. Ávöxtun leiða Séreignardeildar var sem hér segir: Leið I 9,6%, Leið II 7,5% og Leið III 10,0%. Samsvarandi raunávöxtunartölur voru: 2,3%, 0,3% og 2,7%.

Alls greiddu 14.576 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu. Iðgjöld til Tryggingadeildar voru 2.878 millj. króna og iðgjöld til Séreignadeildar 78 millj. króna.

Lífeyrisgreiðslur Tryggingadeildar námu 1.741 millj. króna og lífeyris- og útgreiðslur Séreignadeildar nam 181 millj. króna, þar af 108 millj. kr. vegna heimildar til sérstakrar útborgunar skv. lögum.

Hrein eign Tryggingadeildar til greiðslu lífeyris í lok júní sl. nam 119.784 millj. króna og hrein eign Séreignar nam á sama tíma 3.873 millj. króna.