Ársfundur Stapa og tillögur að breytingum á samþykktum

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn miðvikudaginn 4. maí n.k. í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri og hefst kl. 14:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreikning og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Breytingar á samþykktum
  5. Kosning stjórnar
  6. Kosning löggilts endurskoðanda
  7. Ákvörðun um laun stjórnar
  8. Önnur mál

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans. Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögurnar hafa verið sendar aðildarfélögum og þær má jafnframt finna á heimasíðunni hér.

Önnur gögn má finna hér;