Fréttir af ársfundi sjóðsins

Ársfundur sjóðsins var haldinn í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, í gær fimmtudaginn 16. maí.

Ársfundur sjóðsins var haldinn í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, í gær fimmtudaginn 16. maí. Fundurinn var vel sóttur, en þó þurfti að gera hálftíma hlé á setningu fundar vegna ófærðar á Möðrudalsöræfum sem leiddi til tafa á mætingu fundarmanna af Austurlandi. 
Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.
Formaður stjórnar Ágúst Torfi Hauksson fór yfir skýrslu stjórnar. Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri fór yfir ársreikning sjóðsins og tryggingafræðilega stöðu og var ársreikningurinn samþykktur samhljóða að lokinni yfirferð.  Þá kynntu fjárfestingarstjóri Arne Vagn Olsen og áhættustjóri Jóna Finndís Jónsdóttir fjárfestingar- og áhættustefnu sjóðsins. 
Stjórnarkjör fór fram en skv. samþykktum sjóðsins bar að þessu sinni að kjósa tvo fulltrúar launamanna og tvo til vara og einn fulltrúi launagreiðenda og einn til vara.  Af hálfu launamanna voru Björn Snæbjörnsson og Pálína Margeirsdóttir kjörin og til vara Anna María Elíasdóttir og Sverrir Mar Albertsson og af hálfu launagreiðenda var Guðrún Ingólfsdóttir kjörin aðalmaður og Gunnþór Ingvason til vara.  Þá var endurskoðunarfyrirtækið Deloitte ehf. kosið til að sjá um ytri endurskoðun sjóðsins. 
Þá samþykkti fundurinn tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins sem lagðar voru fyrir fundinn. Var m.a. um að ræða breytingar á fjölda stjórnarmanna, en þeim mun fjölgað úr 6 í 8, og mun stjórnarkjör á ársfundi 2014  taka mið af breyttum samþykktum.  Aðrar samþykktarbreytingar voru smávægilegar.
Að lokum  var samþykkt tillaga um hækkun á stjórnarlaunum.  Fram komu tvær tillögur tillaga A og tillaga B og var tillaga B samþykkt í leynilegri kosningu.

Glærur vegna fundarins má finna hér
 Ársskýrslu sjóðsins má finna hér