Ávöxtun 5,2% á árinu 2011

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2011. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2011.
Nafnávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins á árinu var jákvæð um 5,2% en raunávöxtun neikvæð um 0,02%.  Alls greiddu 18.320 sjóðfélagar hjá 2.566 launagreiðendum iðgjöld til deildarinnar og námu iðgjöld ríflega 5,5 milljörðum króna og hækkuðu um 9,75% frá fyrra ári. 
Lífeyrisgreiðslur deildarinnar námu  3.255 millj. króna og hækkuðu um 9,1% frá fyrra ári.

Rekstur Séreignardeildar sjóðsins gekk þokkalega á árinu. Deildin býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir Safn I,  Safn II og Safn III og var raunávöxtun þeirra 4,4%%, -0,2%% og 2,9% á árinu.

Heildareignir sjóðsins í árslok námu 117 milljörðum króna og hækkuðu um 8,1 milljarða eða um 7,4% frá fyrra ári.

Auglýsingu um afkomu Stapa nálgast hér