Ávöxtun Stapa lífeyrissjóðs var 6,2% á árinu 2010

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs staðfesti ársreikning fyrir sjóðinn fyrir árið 2010 á fundi sínum í 1. mars sl. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs staðfesti ársreikning fyrir sjóðinn fyrir árið 2010 á fundi sínum í 1. mars sl.

Nafnávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins á árinu var 6,2% og raunávöxtun 3,5%.  12.712 einstaklingar greiddu reglubundið iðgjöld á árinu og námu þau  ríflega 5 milljörðum króna, sem er 4,8% hækkun frá fyrra ári.  Lífeyrisgreiðslur deildarinnar námu 2.985 millj. króna og hækkuðu um 8,9% frá fyrra ári.

Rekstur Séreignardeildar sjóðsins gekk vel á árinu. Deildin býður upp á 3 ávöxtunarleiðir Safn I,  Safn II og Safn III og var raunávöxtun þeirra 13,9%, 9,9% og 6,1% á árinu.

Heildareignir sjóðsins í árslok námu 109 milljörðum króna og hækkuðu um 8,7 milljarða eða um 8,7% frá fyrra ári.

Nánari grein verður gerð fyrir uppgjörinu síðar.