Besta raunávöxtun í fimm ár

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2014. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris tæpir 157 milljarðar króna og hækkaði um 13,3 milljarða frá fyrra ári eða um 9,2%. 

Nafnávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins var 7,3% á árinu sem svarar til 6,2% raunávöxtunar. Þetta er besta raunávöxtun sjóðsins sl. fimm ár, en meðalraunávöxtun síðustu fimm ára er 3,6%.

Séreignardeild sjóðsins býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir með mismunandi áhættu.

  • Safn I skilaði 5,8% nafnávöxtun sem svarar til 4,7% raunávöxtunar.
  • Safn II skilaði 8,0% nafnávöxtun sem svarar til 6,9% raunávöxtunar.
  • Safn III sem alfarið er ávaxtað í innlánum skilaði 3,9% nafnávöxtun sem svarar til 2,8% raunávöxtunar.

Tæplega 8 þúsund lífeyrisþegar fengu tæpa 4,2 milljarða króna í lífeyri úr Tryggingadeild sjóðsins á árinu 2014.  Voru þetta um 11,2% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 7,2%. Alls greiddu 18.855 sjóðfélagar hjá 2.692 launagreiðendum iðgjöld til deildarinnar á árinu en iðgjöld námu tæpum 7 milljörðum króna og hækkuðu um 5,5% milli ára.

Nánari grein verður gerð fyrir uppgjörinu síðar.