Breyting á útborgunardögum

 Stjórn Greiðslustofu lífeyrissjóða hefur samþykkt breytingar á útborgunardögum lífeyris.   Útborgun lífeyris fer nú fram síðasta dag hvers mánaðar, í stað fyrsta dags næsta mánaðar eins og verið hefur.  Breyting þessi hefur tekið gildi og er fyrsta útborgun með þessum hætti í dag 30. desember.