Breytingar á lífeyrissjóðskerfinu

Stefnt er að töluverðum breytingum á lífeyrissjóðskerfinu þann 1. júlí nk. Á upplýsingavefnum www.lifeyrismal.is er birt áhugavert viðtal við Þorbjörn Guðmundsson, formann Landssamtaka lífeyrissjóða, um þessar breytingar.

Hjá Stapa lífeyrissjóði er unnið að breytingunum og verða þær kynntar sjóðfélögum á heimasíðunni eftir aukaársfund sem fer fram þann 22. júní kl. 13 í Hofi Menningarhúsi á Akureyri.