Fréttir frá ársfundi – Stapi tekur upp nýtt réttindakerfi

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs var haldinn í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, miðvikudaginn 29. apríl sl. Mæting á fundinn var góð og fór hann vel fram. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.

Ágúst Torfi Hauksson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2014. Þá fór Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri yfir ársreiknings sjóðsins og áritanir og tryggingastærðfræðingurinn Bjarni Guðmundsson gerði grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu. Var ársreikningur sjóðsins samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni.  Einnig kynntu fjárfestingarstjóri Arne Vagn Olsen og áhættustjóri Jóna Finndís Jónsdóttir fjárfestingar- og áhættustefnu sjóðsins.  

Á fundinum voru gerðar umtalsverðar breytingar á samþykktum sjóðsins. Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri gerði grein fyrir breytingunum. Með þessum breytingum hefur sjóðurinn tekið upp nýtt réttindaávinnslukerfi, sem ætlað er að tryggja betur samræmi milli eigna og skuldbindinga sjóðsins. Unnið hefur verið að þessu nýja kerfi sl. 3 ár og hefur það verið til kynningar víða þ.m.t. hjá aðildarfélögum sjóðsins. Gert er ráð fyrir að nýja kerfið komi til framkvæmda frá og með 1. janúar 2016.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs skipa í dag:

Frá launamönnum: Huld Aðalbjarnardóttir, Sverrir Mar Albertsson, Tryggvi Jóhannsson og Þórarinn Sverrisson (formaður stjórnar) Varamenn: Erla Björg Guðmundsdóttir, Heimir Kristinsson, Kristján Eggert Guðjónsson og Sigríður Dóra Sverrisdóttir,

Frá launagreiðendum: Ágúst Torfi Hauksson (varaformaður), Erla Jónsdóttir, Kristín Halldórsdóttir og Unnur Haraldsdóttir.  Varamenn: Auður Anna Ingólfsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir, Oddur Helgi Halldórsson og Ævar Jónsson.

Þá var samhljóða samþykkt tillaga að Deloitte ehf. sem löggiltum endurskoðenda sjóðsins og einnig tillaga að óbreyttum stjórnarlaunum frá síðasta ári.

Svipmyndir frá fundinum má sjá hér.

Gögn frá ársfundinum: