Heimild til að sækja um útgreiðslu séreignarsparnaðar rennur út 1. janúar 2015

Heimild til að sækja um sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar rennur út þann 1. janúar 2015 og lokadagur umsókna því 31. desember.  Fyrir þá sem óska eftir að nýta sér þjónustu sjóðsins er rétt að vekja athygli á því að skrifstofa Stapa er lokuð 31. desember n.k. Mögulegt er að senda umsóknir rafrænt til sjóðsins, með faxi eða skannaðar í tölvupósti og þurfa þær berast fyrir árslok til að vera gildar.

Sjóðfélögum er velkomið að koma við á skrifstofu Stapa að Strandgötu 3 eða hafa samband í síma 460 4500 til að fá nánari upplýsingar. 

Hér má finna umsókn um sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar.