Opnað hefur verið á ný fyrir útgreiðslu séreignarsparnaðar og gildir sú heimild til 1. janúar 2014.
Opnað hefur verið á ný fyrir útgreiðslu séreignarsparnaðar og gildir sú heimild til 1. janúar 2014. Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi í desember sl. var heimild til úttektar á séreignarsparnaði opnuð á ný.
Helstu upplýsingar um heimildina eru:
- Heimilt er að greiða út innstæðu séreignarsparnaðar allt að 6.250.000 króna óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila.
- Inneign sem hægt er að taka út miðast við stöðu 1. janúar 2013, en þó aldrei hærri fjárhæð en 6.250.000 krónur.
- Heimildin nær ekki til úttektar á greiðslum sem berast sjóðnum eftir 1. janúar 2013.
- Greiddur er tekjuskattur af fjárhæðinni.
- Inneignin greiðist út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu, á 15 mánuðum frá því beiðni um útgreiðslu er lögð fram.
- Útgreiðslutími styttist ef um lægri fjárhæð en 6.250.000 kr er að ræða.
- Greiðslur sem greiddar hafa verið samkvæmt eldri heimild dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út.
- Umsókn um úttekt þarf að hafa borist fyrir 20. dags mánaðar fyrir fyrstu útborgun.
- Stapi lífeyrissjóður þarf eins og aðrir vörsluaðilar að fá samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.
- Heimild til úttektar gildir til 1. janúar 2014 og síðasti dagur til að sækja um útgreiðslu er 31. desember 2013.
- Sjóðfélagi ber ábyrgð á að upplýsa sjóðinn í hvaða skattþrepi skattgreiðslur af úttekt eiga að vera.
Umsóknareyðublað fyrir sérstaka útgreiðslu séreignar