Héraðsdómur fellur Glitni í vil

Dómur féll í ágreiningsmáli Stapa lífeyrissjóðs og Glitnis í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær 3. apríl 2014.  Í stuttu máli þá felst dómurinn á nær allar kröfur Glitnis í málinu og er Stapi dæmdur til að greiða Glitni tæpa 3,7 milljarða að frádregnum 750 millj. kr. innborgunum, auk dráttarvaxta frá 28. febrúar 2012. „Dómurinn er mikil vonbrigði og kemur okkur nokkuð á óvart, bæði dómsorðið og röksemdafærsla dómarans“ segir Kári Arnór framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs. „Það er áhyggjuefni hversu ólíkir dómar eru að falla í þessum afleiðusamningamálum þar sem hafðar eru uppi mjög svipaðar málsástæður. Þannig féll nýlega dómur í Héraðsdómi Norðurlands vestra þar sem telft var fram svipuðum málsástæðum, en niðurstaðan var á þveröfugan veg miðað við þennan dóm. Það sorglega við dómsniðurstöðuna er að dómarinn virðist ekki skilja eðli þessara viðskipta og ruglar m.a. saman stundarviðskiptum með gjaldmiðla og framvirkum gjaldmiðlaviðskiptum, sem er sitt hvað, svo dæmi sé tekið. Hann byggir dóminn nær alfarið á markaðsskilmálum Glitnis og er engu líkara en að það hafi verið nær einu gögnin sem dómarinn kynnti sér, þótt hann virðist ekki fyllilega skilja sum ákvæði skilmálanna. Þá virðist dómarinn tiltaka ný rök fyrir Glitni, sem ekki eru hluti af þeirra málsástæðum, sem er sérstakt. Einnig skiljum við ekki sumar dómatilvísanirnar og teljum að þær eigi ekki við um það ágreiningsefni sem þarna er uppi. Það er alltaf áhætta fólgin í að fara með mál af þessu tagi fyrir dómstóla þar sem þau eru flókin og reyna á sérþekkingu. Dómarinn í þessu máli virðist þannig alls ekki skilja hvers eðils viðskipti af þessu tagi eru. Það eru líka vonbrigði að hann skautar mjög létt fram hjá öllum okkar málsástæðum eða fjallar alls ekki um þær. Hvað um það, þetta er aðeins héraðsdómur og næsta víst að málinu verður áfrýjað. Hæstiréttur hefur marg oft snúið við héraðsdómum, svo ekki er ástæða til að örvænta, ekki síst vegna þess hve dómurinn er illa rökstuddur og byggir a.m.k. að hluta á misskilningi. Þetta er í það minnsta mat okkar lögmanna“ segir Kári Arnór. En hvað þýðir það fyrir Stapa ef Hæstiréttur staðfestir dóminn og Stapa verður gert að greiða þessar fjárhæðir? „Jafnvel þótt Hæstiréttur myndi staðfesta þennan héraðsdóm þá er ekki víst að þetta hafi nein teljandi áhrif á afkomu Stapa. Stapi lífeyrissjóður á um 6 milljarða kröfur á Glitni, sem hafa verið færðar niður. Þær munu væntanlega nýtast til skuldajöfnunar á móti þessum kröfum. Um það er þó ekki hægt að fullyrða fyrr en hæstaréttardómur er genginn og á skuldajöfnun verður látið reyna. Við munum hins vegar sækja það fast að fá málinu snúið við í Hæstarétti.“ segir Kári Arnór að lokum.