Innskráning með rafrænum skilríkjum í síma

Vakin er athygli á því að nú er virkur sá valkostur að skrá sig inn á sjóðfélaga – og launagreiðandavef Stapa lífeyrissjóðs með rafrænum skilríkjum í síma.  Er þetta kærkomin  viðbót við rafræna innskráningu en áður var eingöngu hægt að notast við kortaskilríki.  

Á sjóðfélagavef Stapa er hægt að fá nýjustu upplýsingar um réttindi og iðgjaldagreiðslur ásamt því að nálgast áður útsend yfirlit. Hvetjum við sjóðfélaga til að skoða þann kost að afþakka pappír og hjálpa sjóðnum að gera hlutina hagkvæmari og vistvænni. Hér á forsíðunni er farið yfir hvernig hægt er að afþakka pappír á sjóðfélagavefnum.