Fjármálaeftirlitið og Landssamtök lífeyrissjóða kynntu þann 4. febrúar sl. helstu niðurstöður nýrrar rannsóknar en rannsókn þessi var hluti fjölþjóðlegs verkefnis með samræmdri aðferðarfræði um nægjanleika lífeyris í ríkjum Efnahags og framfarastofnun Evrópu, OECD.
Það er skemst frá því að segja að íslenska lífeyriskerfið stenst með ágætum stefnumarkandi tilmæli stofnunarinnar og stendur vel að vígi í samanburði við önnur lönd. Meðal helstu styrkleika má nefna eftirfarandi:
Nánari upplýsingar má finna á vef Landssamtaka lífeyrissjóða og einnig er fréttatilkynning Fjármálaeftirlitsins hér. Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér og hvetjum við sjóðfélaga til að kynna sér efnistök hennar.