Lífeyrisgáttin - réttindi í öllum lífeyrissjóðum á einum stað

Algengt er að sjóðfélagar eigi réttindi í fleiri en einum lífeyrissjóði og fram til þessa hafa þeir þurft að sækja sjálfir upplýsingar um lífeyrisréttindi sín. Með Lífeyrisgáttinni geta sjóðfélagar nú fengið í einu lagi upplýsingar um heildar áunnin lífeyrisréttindi í samtryggingasjóðum sem þeir hafa aflað sér um dagana. 

Lífeyrisgáttin er að finna heimasíðu sjóðsins undir flipanum "vefur sjóðfélaga".  Finna má leiðbeiningar hér sem auðveldar sjóðfélögum að komast inn á sjóðfélagavefinn og nálgast réttindi sín.