„Lífeyrissjóðurinn þinn“ - bakhjarl

Hún var söguleg stundin í Saint Étienne í Frakklandi  á þriðjudaginn þegar Ísland mætti Portúgal á EM karla í fótbolta 2016.  Ótrúlegt afrek unnið, áfram Ísland!

Stundin var líka stór fyrir lífeyrissjóðina því í auglýsingatíma útsendingarinnar var frumsýnd leikin auglýsing sem Dagur Hilmarsson og kvikmyndaframleiðandinn Republik ehf. gerðu fyrir Landssamtök lífeyrissjóða.

Hér birtist sögubrot (raunverulegra) mæðgna í fallegu umhverfi Íslands. Móðirin lítur til baka en dóttirin fram á veg og heldur út í lífið. „Lífeyrissjóðurinn þinn“ er bakhjarl beggja.

Sjón er sögu ríkari!