Opið hús þriðjudaginn 5. nóvember

Í tilefni af opnun Lífeyrisgáttarinnar verðum við með sérstakan kynningardag þriðjudaginn 5. nóvember. Þar gefst sjóðfélögum tækifæri á að kynna sér Lífeyrisgáttina og ræða almennt um lífeyrisréttindi sín

Við lengjum opnunartíma þann dag til kl. 19:00 á skrifstofum okkar að Strandgötu 3, Akureyri og Egilsbraut 25, Neskaupstað og verðum með heitt á könnunni.  Skorum við á sjóðfélaga að koma og kynna sér málin.