Orðsending til launagreiðenda

Yfirlit vegna hreyfinga ársins 2014 hafa nú verið send út til launagreiðenda. Mjög mikilvægt er að yfirfara vel yfirlitin til að tryggja réttar upplýsingar og stöðu.

Sérstök athygli er vakin á því að í næstu útsendingu, haust 2015, verða launagreiðendayfirlit eingöngu aðgengileg á rafrænu formi á vef launagreiðenda. Að þessu tilefni er vert að minna á mikilvægi þess að skrá inn virk netföng á launagreiðendavefinn til að auðvelda upplýsingagjöf.  Skráning netfangs fer fram undir Stillingar/ Notendaupplýsingar.

Það verða því ekki send út pappírsyfirlit nema sérstaklega sé óskað eftir því. Þeir launagreiðendur sem kjósa að fá yfirlit áfram send á pappír geta annað hvort:

  • haft samband í síma 460 4500
  • sent beiðni á netfangið stapi@stapi.is