Raunávöxtun Stapa 9,2% á árinu 2015

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2015.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2015. Um síðustu áramót var hrein eign til greiðslu lífeyris rúmir 179 milljarðar króna og hækkaði um rúman 21 milljarð króna frá fyrra ári.

Nafnávöxtun Tryggingadeildar sjóðsins var 11,4% á árinu sem svarar til 9,2% raunávöxtunar. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ára er 4,0%. Rúmlega átta þúsund lífeyrisþegar fengu tæpa 4,5 milljarða króna í lífeyri úr Tryggingadeild sjóðsins á árinu 2015.  Voru þetta um 9,6% hærri greiðslur en árið á undan en á sama tíma fjölgaði lífeyrisþegum um 6,5%. Alls greiddu rúmlega 19 þúsund sjóðfélagar hjá rúmlega 2.800 launagreiðendum iðgjöld til Tryggingadeildar á árinu en iðgjöld námu rúmum 7,4 milljörðum króna og hækkuðu um 11,5% milli ára.

Séreignardeild sjóðsins býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir með mismunandi áhættu.

  • Innlánasafnið skilaði 4,8% nafnávöxtun sem svarar til 2,7% raunávöxtunar.
  • Varfærna safnið skilaði 10,0% nafnávöxtun sem svarar til 7,9% raunávöxtunar.
  • Áræðna safnið skilaði 10,2% nafnávöxtun sem svarar til 8,0% raunávöxtunar.

 

Ársreikninginn í heild sinni má finna hér