Regluverk Stapa lífeyrissjóðs

Fjölmargar reglur gilda um rekstur lífeyrissjóðs, svo sem lög, reglugerðir, samþykktir, reglur settar af Fjármálaeftirliti og reglur sem sjóðurinn hefur sjálfur sett sér í starfsemi sinni. Reglur sem sjóðurinn hefur sjálfur sett sér eru ýmist reglur sem honum ber að setja í samræmi við lög eða önnur opinber fyrirmæli, eða reglur sem stjórn sjóðsins hefur sett til að formfesta starfsemi hans og skilgreina ábyrgðarsvið og heimildir starfsmanna. Tekið hefur verið saman yfirlit um þessar reglur og má sjá það hér.