Réttindastaða sjóðfélaga nú aðgengileg á sjóðfélagavef og lífeyrisgátt

Það upplýsist með ánægju að réttindastaða sjóðfélaga er nú aðgengilega á ný á sjóðfélagavef og lífeyrisgátt Stapa. Eins og áður var greint frá, voru tæknilegar tafir í frágangi á tengingu við sjóðfélagavef við yfirfærslu úr eldra kerfi.

Beðist er innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem sjóðfélagar kunna að hafa orðið fyrir vegna þessa tafa. 

Jafnframt eru sjóðfélagar hvattir til að skoða réttindi sín vel og hafa samband við sjóðinn hafi þeir athugasemdir við réttmæti áunninna réttinda.