Samþykktir staðfestar

 Fjármálaráðuneytið hefur með bréfi dags. 5. september staðfest breytingar á samþykktum sjóðsins. Á ársfundi sjóðsins 12. maí sl. voru samþykktar nokkrar breytingar á samþykktum sjóðsins.  Veigamesta breytingin var lækkun á áunnum réttindum  en jafnframt voru gerðar nokkrar minniháttar breytingar.  Athugasemd barst frá ráðuneytinu við orðalag á grein 20.6 í samþykktum frá fundinum og var sú grein lagfærð til samræmis við athugasemd.  Samþykktir sjóðsins má finna hér á síðunni.