Samþykktir staðfestar

Fjármálaráðuneytið hefur með bréfi dags. 1. júní sl. staðfest breytingar á Fjármálaráðuneytið hefur með bréfi dags. 1. júní sl. staðfest breytingar á samþykktum sjóðsins. Á ársfundi sjóðsins 8. maí sl. voru gerðar nokkar breytingar á samþykktum sjóðsins en helsta breytingin var lækkun áunninna réttinda um 7,5%.  Samkvæmt samþykktum sjóðsins taka breytingarnar gildi frá og með upphafi næsta mánaðar eftir að samþykktirnar hafa verið samþykktar af Fjármálaráðuneyti og munu breytingarnar því taka gilda frá og með 1. júlí n.k.