Alþingi heimilaði að nýju þann 11. maí sl. tímabundna heimild til útgreiðslu á séreignarsparnaði.
- Umsóknarfrestur er til og með 31. desember 2021.
- Hægt er að taka út allt að 12.000.000 kr. (óháð því hvort heildarfjárhæðin er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila).
- Miðað er við stöðu séreignar 1. apríl 2021.
- Fjárhæðin greiðist út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum á allt að 15 mánuðum frá því að beiðni um útgreiðslu er lögð fram hjá vörsluaðila.
- Staðgreiðsla er dregin frá útborgun.
- Umsóknarfrestur er til 15. hvers mánaðar vegna útgreiðslu í lok viðkomandi mánaðar.
Hægt er að sækja um sérstaka útborgun séreignarsparnaðar á umsóknarvef en þar er sérstök umsókn vegna þessarar útgreiðslu.
Upplýsingar um inneign í séreign hjá Stapa er að finna á vef sjóðfélaga.
Bendum einnig á spurt og svarað - Úrræði vegna COVID-19.