Alþingi heimilaði þann 11. maí sl. tímabundna heimild til útgreiðslu á séreignarsparnaði. Frestur til að sækja um útborgun samkvæmt þessu úrræði er til og með 31. desember nk.
Hægt er að sækja um sérstaka útborgun séreignarsparnaðar á umsóknarvef en þar er sérstök umsókn vegna þessarar útgreiðslu.
Upplýsingar um inneign í séreign hjá Stapa er að finna á vef sjóðfélaga.
Bendum einnig á spurt og svarað - Úrræði vegna COVID-19.