Sérstök útgreiðsla séreignar

Við viljum minna sjóðfélaga á að frestur til að nýta tímabundna heimild til útgreiðslu allt að 5.000.000 kr. af séreign rennur út 1. apríl 2011. Við viljum minna sjóðfélaga á að frestur til að nýta tímabundna heimild til útgreiðslu allt að 5.000.000 kr. af séreign rennur út 1. apríl 2011. Ekki verður tekið við umsóknum eftir 31. mars 2011.

Upplýsingar um heimildina:

  • Heimilt er að greiða út innstæðu séreignarsparnaðar allt að 5 milljónir króna óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila.
  • Inneign sem hægt er að taka út miðast við stöðu 1. janúar 2011, en þó aldrei hærri fjárhæð en 5 milljónir króna.
  • Inneignin greiðist út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu, á 12 mánuðum frá því beiðni um útgreiðslu er lögð fram.
  • Útgreiðslutími styttist ef um lægri fjárhæð en 5 milljónir er að ræða.
  • Greiðslur sem greiddar hafa verið samkvæmt eldri heimild dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út.
  • Greiðslum til þeirra sem óskað hafa eftir úttekt samkvæmt eldri heimild skal vera lokið áður en greiðslur hefjast samkvæmt nýsamþykktum lögum. 
  • Þeir sem sótt hafa um greiðslu skv. eldri heimild og óska eftir áframhaldandi greiðslum þurfa að útfylla nýja umsókn.
  • Umsókn um úttekt þarf að hafa borist  fyrir 20. dags mánaðar fyrir fyrstu útborgun.
  • Stapi lífeyrissjóður þarf eins og aðrir vörsluaðilar að fá samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.
  • Sjóðfélaga ber ábyrgð á að upplýsa sjóðinn í hvaða skattþrepi skattgreiðslur af úttekt eiga að vera.