Sérstök útgreiðsla séreignar, hámark 6.250.000 kr

Með lögum sem sett voru á árinu 2009 var sjóðfélögum veitt tímabundin heimild til að taka út séreignarsparnað og var heimildin miðuð við 1.000.000 kr., heimildin var rýmkuð, fyrst í 2.500.000 kr.  og síðar í 5.000.000 kr.
Með lögum sem samþykkt voru 17. september sl. var heimild þessi veitt á ný og rýmkuð og er nú samtals 6.250.000 kr. Frestur til að nýta heimildina er til 1. júlí 2012.

Upplýsingar um heimildina:

 

  • Heimilt er að greiða út innstæðu séreignarsparnaðar allt að 6.250.000 króna óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila.
  • Inneign sem hægt er að taka út miðast við stöðu 1. október 2011, en þó aldrei hærri fjárhæð en 6.250.000 krónur.
  • Inneignin greiðist út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu, á 15 mánuðum frá því beiðni um útgreiðslu er lögð fram.
  • Útgreiðslutími styttist ef um lægri fjárhæð en 6.250.000 kr er að ræða.
  • Greiðslur sem greiddar hafa verið samkvæmt eldri heimild dragast frá heildarfjárhæð sem heimilt er að greiða út.
  • Sé óskað eftir útgreiðslum samkvæmt heimild þessari fellur fyrra greiðslufyrirkomulag niður.
  • Umsókn um úttekt þarf að hafa borist  fyrir 20. dags mánaðar fyrir fyrstu útborgun.
  • Stapi lífeyrissjóður þarf eins og aðrir vörsluaðilar að fá samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.
  • Sjóðfélagi ber ábyrgð á að upplýsa sjóðinn í hvaða skattþrepi skattgreiðslur af úttekt eiga að vera.


Lög um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum (hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra, fjárfestingarheimildir).