Sigur í Héraðsdómi í Straumsmálinu

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stapa lífeyrissjóði í vil í máli sjóðsins gegn ALMC hf, sem áður hét Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki.   Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stapa lífeyrissjóði í vil í máli sjóðsins gegn ALMC hf, sem áður hét Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki.  

Var ALMC hf. dæmt til að greiða sjóðnum 5,2 milljarða króna. Málið kom upp eftir að lögmannsstofa sem vann fyrir Stapa gerði mistök og lýsti kröfu í bú bankans of seint fyrir hönd lífeyrissjóðsins. Málsrök Stapa voru  að krafan ætti að halda gildi sínu þar sem Straumur-Burðarás fór ekki í gjaldþrot, heldur náði nauðasamningum við kröfuhafa. Dómari komst að sömu niðurstöðu í dag.

"Þetta er áfanga sigur" sagði Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Stapa. "Það er ánægjulegt að dómurinn hefur tekið undir okkar rök. Ég reikna þó fastlega með að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar og rétt er að spyrja að leikslokum. Hvað varðar fjárhæðina er einnig rétt að minna á að ekki er gert ráð fyrir fullum heimtum frá ALMC hf. (áður Straumi-Burðarás) mv. nauðasamning félagsins."