Sjóðfélagafundir um skýrslu úttektarnefndar

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs boðar til sjóðfélagafunda í samstarfi við stéttarfélögin. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs boðar til sjóðfélagafunda í samstarfi við stéttarfélögin. Tilefni fundanna er nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

29. febrúar     Húsavík, sal Framsýnar Garðarsbraut 26,
1. mars           Blönduós, sal Samstöðu Þverbraut 1
5. mars           Höfn, sal AFLs Víkurbraut 4
6. mars           Reyðarfjörður, Námsverinu Búðareyri 1
7. mars           Vopnafjörður, í sal AFLs Lónabraut 4
8. mars           Akureyri, Lionssalnum Skipagötu 14 4. hæð

Allir fundirnir hefjast kl. 20:00
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um efni skýrslunnar.
Skýrsluna má finna í heild sinni hér á heimsíðu sjóðsins.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs

Auglýsingu um fundarherferðina má sjá hér.