Sjóðfélagayfirlit í póstdreifingu

Senn berast yfirlit með upplýsingum yfir iðgjaldahreyfingar ársins 2015 til sjóðfélaga Stapa. Mikilvægt er að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðli. Vanti innborganir skal hafa samband við starfsfólk Stapa í síma 460 4500. Jafnframt er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið idgjold@stapi.is.

Á baksíðu yfirlitanna má finna stutta samantekt sem snýr að breytingum á réttindakerfi Stapa, þessa samantekt má einnig nálgast hér.