Sjóðfélagayfirlit - veflykill

Nú ættu allir greiðandi sjóðfélagar hjá Stapa að hafa fengið sent sjóðfélagayfirlit en yfirlitin fóru í póst fyrr mánuðinum.
Mikilvægt er að sjóðfélagar beri saman iðgjaldagreiðslur á sjóðfélagayfirliti við greidd iðgjöld skv. launaseðlum.  Ef iðgjöld vantar inn á yfirlitið hvetjum við sjóðfélaga að hafa samband við starfsfólk  innheimtudeildar sjóðsins.  Þetta á einnig við hafi sjóðfélagi ekki fengið yfirlit.

Þá viljum við minna á sjóðfélagavefinn þar sem hægt er að fá nýjustu upplýsingar um stöðuna hjá sjóðnum og aðgang að þeim yfirlitum sem send hafa verið.  Veflykill að sjóðfélagavefnum kemur fram á yfirlitum sjóðfélaga og hann geta sjóðfélagar notað til að komast inn á vefinn.