Sjóðfélagayfirlitin eru komin út

Nú ættu sjóðfélagayfirlit að vera að berast virkum sjóðfélögum hjá Stapa. Nú ættu sjóðfélagayfirlit að vera að berast virkum sjóðfélögum hjá Stapa.

Við hvetjum sjóðfélaga til að bera saman iðgjaldagreiðslur á sjóðfélagayfirliti við greidd iðgjöld skv. launaseðlum.  Ef iðgjöld vantar inn á yfirlitið getur sjóðfélagi leitað til starfsfólks innheimtudeildar sjóðsins við lausn málsins.

Ef launþegi hefur ekki fengið yfirlit en telur að vinnuveitandi hafi átt að skila til sjóðsins er afar mikilvægt að hafa samband við sjóðinn.

Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar Ábyrgðarsjóðs launa við gjaldþrot, skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til lífeyrissjóðsins.  Ef upplýsingar um iðgjöld vantar á yfirlitið er mikilvægt að launþegi tilkynni það til lífeyrissjóðsins, með framlagningu launaseðla innan 60 daga frá útsendingu yfirlits.  Komi ekki fram athugasemd frá launþega, er lífeyrissjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum sem þessi iðgjöld skapa, að því marki sem þau fást greidd.