Yfirlit berast sjóðfélögum

Þessa dagana berast sjóðfélögum yfirlit með upplýsingum yfir iðgjaldahreyfingar ársins 2014. Eru sjóðfélagar hvattir til að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðli. Vanti innborganir skal hafa samband við starfsfólk Stapa í síma 460 4500 og jafnframt er hægt að senda fyrirspurn á netfangið idgjold@stapi.is.

Þá er vakin athygli á því að á vef sjóðfélaga er hægt að fá nýjustu upplýsingar um réttindi og iðgjaldagreiðslur. Vanti lykilorð eða sé það gleymt er hægt að fá nýtt sent í heimabanka.

Það er ánægjulegt hversu margir hafa brugðist við og afþakkað pappírsyfirlit. Hvetjum við sjóðfélaga til að skoða þann kost og hjálpa okkur að gera hlutina hagkvæmari og vistvænni. Hér á forsíðunni er farið yfir hvernig hægt er að afþakka pappír á sjóðfélagavefnum.

Meðfylgjandi útsendingu sjóðfélagayfirlita að þessu sinni er fréttabréf frá Stapa lífeyrissjóði. Hér má sjá rafræna útgáfu af fréttabréfinu.