Skrifstofur Stapa á Akureyri og í Neskaupstað eru lokaðar fyrir heimsóknir frá og með mánudeginum 17. janúar. Tekið verður á móti gögnum í afgreiðslu sjóðsins á Akureyri á hefðbundnum opnunartíma.
Ákvörðun varðandi þessa ráðstöfun er breytingar á samkomutakmörkunum vegna útbreiðslu Covid-19. Starfsfólk mun áfram sinna verkefnum og þjónustu við sjóðfélaga, launagreiðendur og aðra sem þurfa að leita til sjóðsins gegnum tölvupóst eða síma. Starfsemin verður skipulögð þannig að sem minnst röskun verði á þjónustu en búast má við að það hægi á einhverjum þáttum.
Þeir sem eiga erindi við sjóðinn eru hvattir til að nýta neðangreindar þjónustuleiðir:
- Sjóðfélagavefur
Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, stöðu lána, sjóðfélagayfirlit o.fl.
- Launagreiðendavefur
Launagreiðendur finna allar upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins á launagreiðendavef.
- Umsóknir
Allar umsóknir sjóðsins er að finna á umsóknarvef. Hægt er að skila inn öllum umsóknum með rafrænum skilríkum.
- Símaþjónusta og tölvupóstur
Hægt er að senda fyrirspurnir til sjóðsins í tölvupósti á stapi@stapi.is. Fyrirspurnir vegna sjóðfélagalána má senda á lan@stapi.is. Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00-12:30 og 13:00-15:00 í síma 460-4500.
- Skil á gögnum
Hægt er að skila inn gögnum á hefðbundnum opnunartíma í afgreiðslu sjóðsins í Strandgötu 3 á Akureyri.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.