Stapi lífeyrissjóður hefur auglýst eftir lögfræðingi til að starfa fyrir sjóðinn. Um er að ræða nýtt starf, en sífellt auknar kröfur er gerðar til lagalegra atriða og þekkingar, bæði í fjárfestingum og annarri vinnu sem fer fram hjá sjóðnum.
Það er Capacent sem mun sjá um ráðningarferlið fyrir sjóðinn og er þeim sem áhuga hafa bent á að hafa samband þá. Auglýsingu um starfið, s.s. um umsóknarfrest og starfssvið og menntunar- og hæfniskröfur má sjá hér.