Starfslokanámskeið

Akureyrarbær, Kjölur, Eining Iðja og FSA efndu til starfslokanámskeiðs dagana 1., 3. og 8. mars sl. Markmið námskeiðsins var að hjálpa starfsfólki að undirbúa starfslok vegna aldurs, aðlaga sig breyttu lífsmynstri og stuðla að innihaldsríku lífi að starfi loknu.

Kári Arnór, framkvæmdastjóri Stapa, kynnti á námskeiðinu lífeyrismál fyrir hönd Stapa lífeyrissjóðs. Glærurnar má nálgast hér.