Stjórn Stapa ákveður að áfrýja

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar niðurstöðu héraðsdóms í máli sjóðsins gegn Landsbanka Íslands (gamla Landsbankanum) um rétt til skuldajöfnunar, sem kveðinn var upp í ágúst sl.

Jafnframt ákvað stjórn sjóðsins að áfrýja til Hæstaréttar niðurstöðu héraðsdóms í máli sjóðsins gegn Fjármálaeftirlitinu um skuldbindingargildi leiðbeinandi tilmæla eftirlitsins og heimildir þess til að beita dagsektum, til að knýja fram túlkun sína á slíkum tilmælum, sem kveðinn var upp í júlí sl.

Þetta var staðfest á fundi stjórnarinnar þann 30. ágúst sl.