Útsending til sjóðfélaga

Þessa dagana berast sjóðfélögum yfirlit með upplýsingum yfir iðgjaldahreyfingar ársins 2013. Eru sjóðfélagar hvattir til að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðli. Vanti innborganir skal hafa samband við launagreiðanda eða starfsfólk Stapa í síma 460 4500. Jafnframt er hægt að senda fyrirspurn á netfangið idgjold@stapi.is.

Þá vekjum við athygli á því að á sjóðfélagavef Stapa er hægt að fá nýjustu upplýsingar um réttindi og iðgjaldagreiðslur. Vanti lykilorð eða sé það gleymt er hægt að fá nýtt sent í heimabanka. Hvetjum við einnig sjóðfélaga til að skoða þann kost að afþakka pappírsyfirlit, en það er hægt á sjóðfélagavefnum og jafnframt er velkomið að hafa samband við skrifstofu sjóðsins. 

Með sjóðfélagayfirlitum í ár fylgir bæklingur með upplýsingum um starfsemi Stapa á árinu 2013.