Vegna útbreiðslu kórónuveiru eru sjóðfélagar og aðrir sem eiga erindi við sjóðinn hvattir til að nýta rafræn samskipti og síma þegar kostur er.
Við bendum á að allar umsóknir er að finna á umsóknarvef sjóðsins. Hægt er að skila inn öllum umsóknum nema vegna sjóðfélagalána með rafrænum skilríkum. Umsóknum vegna sjóðfélagalána og öðrum gögnum þeim tengdum má senda í tölvupósti á netfangið lan@stapi.is.
Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, stöðu lána, sjóðfélagayfirlit o.fl.
Launagreiðendur geta fundið allar upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins á launagreiðendavef.
Hægt er að hafa samband við sjóðinn í síma 460-4500 eða senda fyrirspurnir á stapi@stapi.is. Starfsfólk sjóðsins mun nú sem endra nær leggja sig fram um að svara öllum erindum eins fljótt og kostur er.