03.11.2008
Á stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs var ákveðið að lækka vexti sjóðfélagalána úr 5,7% í 5,2% frá
1. desember n.k.
Á stjórnarfundi Stapa lífeyrissjóðs var ákveðið að lækka vexti sjóðfélagalána úr 5,7% í 5,2% frá
1. desember n.k.
Markmið með lækkuninni er að koma til móts við greiðendur sjóðfélagalána í þeim erfiðleikum sem að steðja?
segir Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri sjóðsins. Hann segir jafnframt ljóst að talsverðir greiðsluerfiðleikar
séu framundan hjá mörgum sjóðfélögum. Stjórn sjóðsins vill með þessu leggja sitt að mörkum til að létta
greiðslubyrði sjóðfélagalána á næstunni. "Það er ljóst á svona tímum að háir vextir skila ekki endilega
hærri vaxtatekjum þar sem há greiðslubyrði eykur líkur á útlánatöpum. Við teljum því rétt að lækka vexti
fremur en hækka við þessar aðstæður? segir Kári að lokum.