Viðbrögð stjórnar Stapa við skattlagningu á lífeyrissjóði

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs ákvað á fundi sínum í dag að sjóðurinn muni draga til baka þátttöku sína í viljayfirlýsingu um fjármögnun á Landspítalanum, verði af áformum stjórnvalda um skattlagningu á lífeyrissjóðina. Stjórn Stapa lífeyrissjóðs ákvað á fundi sínum í dag að sjóðurinn muni draga til baka þátttöku sína í viljayfirlýsingu um fjármögnun á Landspítalanum, verði af áformum stjórnvalda um skattlagningu á lífeyrissjóðina.

Stjórnin mótmælir því harðlega að sjóðir almenns launafólks séu skattlagðir sérstaklega. Þessi skattlagning rýrir lífeyrisréttindi heimilanna í landinu ekki síst þeirra tekjulægri, á meðan opinberir starfsmenn, þ.m.t. alþingismenn og ráðherrar, fá þetta bætt með skattfé. Stjórnin telur ekki forsendur fyrir samstarfi við stjórnvöld um fjármögnun verkefna á sama tíma og ráðist er að grundvelli lífeyrissjóðakerfisins með þessum hætti, svo ekki sé talað um þá grófu mismunun sem í þessu felst.“