Launagreiðendur sem skráð hafa virk netföng á launagreiðendavefinn hafa fengið orðsendingu í tölvupósti þess efnis að yfirlit vegna hreyfinga fyrir tímabilið 1. janúar - 30. september 2017 séu nú aðgengileg á vefnum.
Yfirlitin eru eingöngu á rafrænu formi og ekki send út á pappír nema ef sérstaklega er óskað eftir því. Þeir launagreiðendur sem kjósa að fá yfirlit send á pappír geta haft samband við Stapa í síma 460 4500 eða sent inn beiðni á netfangið idgjold@stapi.is.
Það er mikilvægt að yfirfara vel yfirlitin til að tryggja réttar upplýsingar og stöðu.
Í janúar 2016 var undirritaður samningur milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins þar sem m.a. var samið um þrepaskipta hækkun mótframlags launagreiðenda í lífeyrissjóð.
Framlag atvinnurekenda hækkaði þann 1. júlí 2017 um 1,5% og varð þá 10% skv. samningnum. Fyrir áhugasama má nálgast samninginn í heild sinni hér.
Einnig biðlum við til launagreiðenda að skrá inn virk netföng á launagreiðendavefinn til að auðvelda upplýsingagjöf. Skráning netfangs fer fram undir Stillingar/ Notendaupplýsingar.