Launagreiðendur sem skráð hafa virk netföng á launagreiðendavefinn hafa fengið orðsendingu í tölvupósti þess efnis að yfirlit vegna iðgjalda sem borist hafa sjóðnum frá 1. janúar 2019 til 30. september 2019 eru nú aðgengileg á vefnum.
Yfirlitin eru eingöngu á rafrænu formi og ekki send út á pappír nema ef sérstaklega er óskað eftir því. Þeir launagreiðendur sem kjósa að fá yfirlit send á pappír geta haft samband við Stapa í síma 460 4500 eða sent inn beiðni á netfangið idgjold@stapi.is.
Við hvetjum launagreiðendur til að skrá inn virk netföng á vefinn til að auðvelda upplýsingagjöf. Skráning netfangs fer fram undir Stillingar/ Notendaupplýsingar.
Flestir sjóðfélagar eiga rétt á 11,5% mótframlagi og miðar sjóðurinn við það í útreikningum nema að upplýsingar berist um annað beint frá launagreiðanda.
Vinsamlega hafið samband við sjóðinn ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir.