Yfirlit nú aðgengileg á launagreiðendavef

Nú hafa þeir launagreiðendur sem skráð hafa virk netföng á launagreiðendavef fengið orðsendingu í tölvupósti þess efnis að yfirlit vegna hreyfinga ársins 2015 séu nú aðgengileg á vefnum.  Að þessu sinni eru yfirlitin eingöngu aðgengileg á rafrænu formi og ekki send út pappírsyfirlit nema sérstaklega sé óskað eftir því.  Þeir launagreiðendur sem kjósa að fá yfirlit send á pappír geta haft samband við Stapa í síma 460 4500 eða sent inn beiðni á netfangið idgjold@stapi.is.

Enn minnum við á mikilvægi þess að yfirfara vel yfirlitin til að tryggja réttar upplýsingar og stöðu. Einnig biðlum við til launagreiðenda að skrá inn virk netföng á launagreiðendavefinn til að auðvelda upplýsingagjöf. Skráning netfangs fer fram undir Stillingar/ Notendaupplýsingar.

Nú er mögulegt að skrá sig inn á launagreiðendavef með rafrænum skilríkjum í síma sem gerir aðgengi mjög gott og var kærkomin viðbót.